Landflótti ungs fólks?

Íslendingar eru að upplifa landflótta. Gerir það spurninguna um Evrópusambandsinngöngu mikilvægari eða ekki?

Það er kreppa á Íslandi. Atvinnuleysi er hærra en nokkru sinni áður, og allt í einhverju volli. Og út af því er fólk víst að flýja land, sérstaklega ungt fólk. Reyndar hef ég ekki tekið mikið eftir því: Íslendingar hafa alltaf farið mikið til útlanda og halda því áfram, svo koma þeir aftur heim.
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Ísland og umheimurinn |

Hvernig bregðast skal við súrmjólkurskorti og sturtuklefum á bersvæði

Þessi pistill er eins konar sjálfstætt framhald greinar sem birtist hér á Vefritinu fyrir tveimurvikum síðan og bar titilinn „101 mætir 701“ en þar fjallaði Gunnar Gunnarsson um mikilvægi þess að prófa nýja hluti og skipta öðru hverju um umhverfi.
Lesa meira…

Birtist í Borg og byggð, Heilbrigði, Samfélagið, Ísland og umheimurinn |

Trúarbragðarleysi er mannhyggja

Í grein dagsins hvetur Haukur Hólmsteinsson fólk til að íhuga trúarbragðahugtakið. Hann minnist á andalegheit, sannleikann og trúarbragðaskráningu.

Þegar ég skráði mig úr þjóðkirkjunni var mömmu minni brugðið. „Af hverju gerðiru það?“ Spurði hún. Ég svaraði einfaldlega: „Ég trúi ekki því sem stendur í biblíunni.“
Lesa meira…

Birtist í Fjölmenning, Jafnrétti, Mannréttindi, Samfélagið, Stríð og friður |

Snilldin við rakstur á píkunum okkar

Halla Tryggvadóttir horfði á allar þáttaraðirnar af Sex and the city um daginn og hefur verið hugsi yfir kynfærarakstri síðan.

Í þætti í fyrstu þáttaröðinni, sem kom út fyrir rúmum tíu árum lýsir Samantha, sem hefur mjög frjálslegt viðhorf til kynlífs, yfir undrun sinni á því að hjásvæfa hennar biður hana um að raka af sér skapahárin. Ég varð eins undrandi og Samantha, nema undrun mín stafaði af því að ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að ekki lengra er síðan píkurakstur þótti bara ekkert eðlilegur.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Hjúkrun í Nairobi

Halla Tryggvadóttir fjallar um upplifun sína af því að fara til Nairobi í hjálparstarf.

En þegar í ferðalaginu felst hjálparstarf þar sem hlutverk manns er að sinna og hjúkra fátækustu íbúum borgarinnar Nairobi, þar sem finna má nokkur stærstu fátækrahverfi heims, er hægara sagt en gert að undirbúa sig. Í rauninni er það ekki hægt.
Lesa meira…

Birtist í Fátækt og ójöfnuður, Mannréttindi, Ísland og umheimurinn |