Ályktun vegna innflytjendamála

Forsvarsmenn ungliðahreyfinga í­ öllum stjórnmálaflokknum nema Frjálslyndum, stúdentahreyfingar við Háskóla Íslands og vefritin Deiglan.com og Vefritid.is gagnrýna yfirlýsingar Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um innflytjendamál í­ ályktun sem þeir sendu frá sér í­ dag. Þeir lýsa “vonbrigðum með þá ákvörðun nokkurra forystumanna í­ Frjálslynda flokknum að ala á trúarbragðafordómum og tortryggni í­ garð útlendinga í­ tilraunum sí­num til að auka fylgi flokks sí­ns.” Í ályktuninni segir einnig að slí­kur málflurningur sé meiðandi gagnvart hópi Íslendinga og stuðli að sundrungu í­ samfélaginu. Undirritaðir forystumenn í­ stjórnmálum ungs fólks lýsa vonbrigðum með þá ákvörðun nokkurra forystumanna í­ Frjálslynda flokknum að ala á trúarbragðafordómum og tortryggni í­ garð útlendinga í­ tilraunum sí­num til að auka fylgi flokks sí­ns.

Þannig popúlí­skur málflutningur er meiðandi gagnvart hópi Íslendinga og stuðlar að sundrungu í­ samfélaginu. Popúlismi sem þessi margfaldar hættuna á því­ að þau meintu vandamál, sem Magnús Þór Hafsteinsson og Jón Magnússon sjá fyrir sér, verði að veruleika í­ í­slensku samfélagi. Mikilvægi þess að spyrna fótum gegn þessum málflutningi verður ekki því­ ofmælt.

Ofsinn og orðfærið sem einkennir málflutning Magnúsar Þórs og Jóns er bersýnilega til þess eins ætlaður að kalla fram ótta og reiði í­ hugum kjósenda. Nægir þar að nefna fjarstæðukenndan hræðsluáróður Jóns Magnússonar í­ viðtali í­ Silfri Egils og tal Magnúsar Þórs Hafsteinssonar í­ sama þætti um atvinnuþjófnað og að verið sé að kaffæra í­slensku þjóðina. Þessi málflutningur er ekki yfirvegaður, ekki öfgalaus og ekki byggður á rökum.

Þau álitamál sem snúa að þjóðinni varðandi aukinn áhuga útlendinga til að starfa á Íslandi, og sí­vaxandi fjölda fólks sem ákveður að ganga inn í­ í­slenskt samfélag, eiga ekkert skylt við þær rakalausu upphrópanir sem Magnús Þór og Jón hafa uppi. Í stað þess að stuðla að klofningi milli Íslendinga af ólí­kum uppruna ber stjórnmálaflokkum, og öðrum þátttakendum í­ stefnumótun, að stuðla að því­ að hér þróist áfram samfélag þar sem fólk er boðið velkomið, en sé ekki hafnað á grundvelli pólití­sks popúlisma, hræðsluáróðurs eða fordóma. Þess vegna er mikilvægt að aðrir stjórnmálaflokkar haldi áfram að byggja stefnu sí­na í­ málefnum innflytjenda á því­ skynsamlega sjónarmiði að hér á landi geti menn lært og starfað, þrifist og dafnað, óháð því­ hver sé þeirra uppruni.


Agnar Freyr Helgason og Helga Tryggvadóttir, f.h. ritstjórnar Vefritsins
Andri Heiðar Kristinsson, formaður Vöku
Ásgeir Runólfsson, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Auður Lilja Erlingsdóttur, formaður Ungra Vinstri Grænna
Borgar Þór Einarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
Drí­fa Kristí­n Sigurðardóttir, ritstjóri Deiglunnar
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Heimdallar
Eva Marí­a Hilmarsdóttir , formaður Röskvu
Friðbjörn Orri Ketilsson, formaður Frjálshyggjufélagsins
Jakob Hrafnsson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna
Magnús Már Guðmundsson, formaður Ungra jafnaðarmanna
Sigurður Örn Hilmarsson, oddviti Vöku í­ Stúdentaráði Háskóla Íslands

Þórlindur Kjartansson, ritstjóri Deiglunnar

Þessi grein birtist í Fjölmenning, Tilkynningar. Varanleg slóð.