Höfundur: Ásta Kristín Benediktsdóttir
Hvernig bregðast skal við súrmjólkurskorti og sturtuklefum á bersvæði
Þessi pistill er eins konar sjálfstætt framhald greinar sem birtist hér á Vefritinu fyrir tveimurvikum síðan og bar titilinn „101 mætir 701“ en þar fjallaði Gunnar Gunnarsson um mikilvægi þess að prófa nýja hluti og skipta öðru hverju um umhverfi.
Lesa meira…
Að (fá að) vera öðruvísi
Í grein dagsins fjallar Ásta Kristín Benediktsdóttir um hinsegin fólk og öfugugga: Hommar og lesbíur eru öðruvísi, þó að þið haldið að ykkur finnist það ekki. Í okkar samfélagi er gagnkynhneigð norm. Fólk kjáir framan í lítil börn og segir án þess að hugsa: „ó, hvað þessi drengur á eftir að heilla margar stúlkur þegar hann verður stór!“ Konur eru spurðar „átt þú mann?“ en ekki „átt þú maka?“ eða „áttu konu?“ – og karlmenn eru sömuleiðis inntir eftir eiginkonum eða kærustum. Langflestir gera ráð fyrir að aðrir (og þeir sjálfir) séu gagnkynhneigðir þar til annað kemur í ljós.
Lesa meira…
Írland: Eru breytingar í vændum?
Undanfarin misseri hafa Írar lent í svipuðum efnahagskröggum og Íslendingar, en nú eru kosningar á næsta leiti á Írlandi. Ásta Kristín Benediktsdóttir sendir línu frá Dublin og veltir fyrir sér stjórnarskránni írsku og stöðu jafnréttismála:,,Efnahagsástand og stjórnmál á Írlandi hafa komist reglulega í fréttirnar heima á Fróni undanfarið, enda er hughreystandi að vita af einhverjum í jafndjúpum skít og maður sjálfur.”
Lesa meira…
