Höfundur: Björg Magnúsdóttir


Björg Magnúsdóttir

Björg Magnúsdóttir er stjórnmálafræðingur með MA próf í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún er Verzlingur, Hafnfirðingur og fyrrverandi au-pair í Lundúnum. Björg gegndi formennsku í Stúdentaráði Háskóla Íslands og hefur m.a. starfað í verslun Sævars Karls, við kvikmyndahátíð í Reykjavík, í blaðamennsku og á markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands þar sem hún vinnur í dag.

„Frábær nauðgun“

Hvernig notum við orðið nauðgum í daglegu tali, jafnvel í fjölmiðlum? Passa orðin „Frábær nauðgun“ saman? Í pistli dagsins útskýrir Björg Magnúsdóttir fyrir okkur af hverju henni finnst það ekki.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Suðandi stórhríð

Í grein dagsins fjallar Björg Magnúsdóttir um þá suðandi stórhríð sem einkennir alnetið.

Ruglið, pælingarnar, myndböndin, draslið, upplýsingarnar – „suðið“ – er endalaust og óstöðvandi. Ef okkur finnst upplýsingar á netinu of miklar og óskiljanlegar í dag getum við verið viss um að þær munu ekki minnka til framtíðar litið.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Sterkustu „druslur“ í heimi?

Björg Magnúsdóttir á Vefritsgrein dagsins. Hún skrifar um tvíbentar umfjallanir erlendis um íslenskar konur, klámvæðinguna og valið sem við stöndum frammi fyrir á hverjum degi. Staðreyndin er nefnilega sú að samhliða því að vera ógeðslega flottar og sterkar fara íslenskar konur heim með hverjum sem er þegar þær vilja. Ég þarf varla að draga fram senur úr miðbæ Reykjavíkur eftir miðnætti um helgar máli mínu til stuðning. En einhvern tímann á milli þess að íslenskar konur hófu innrás á vinnumarkaðinn og áður en bók Vörek kom út gerðist eitthvað.
Lesa meira…

Birtist í Femínismi, Fjölmiðlar og fréttamennska, Samfélagið, Ísland og umheimurinn |