Höfundur: Dagný Ósk Aradóttir Pind
Hvað er eiginlega kynjuð hagstjórn og hvað varð um hana?
Í grein dagsins fjallar Dagný Aradóttir Pind um kynjaða hagstjórn og veltir fyrir sér hvort ríkisstjórnin sé raunverulega að beita þeirri aðferðarfræði: „Kynjuð hagstjórn snýst í sem stystu máli um að beita sjónarhorni jafnréttis á öll útgjöld og það hvernig ríkið aflar fjár. Í landi sem vill vera í fararbroddi í jafnréttismálum er fullkomlega eðlilegt að slíkri aðferðarfræði sé beitt við svo mikilvæga ákvarðanatöku sem hefur áhrif á allt samfélagið.“
Lesa meira…
Af bíó, bensíni og strætó
Í grein dagsins fjallar Dagný Ósk Aradóttir Pind um samgöngur og strætó.: Mér er farið að líða meira og meira eins og strætókerfinu sé haldið úti til málamynda. Það er ekki litið á strætó sem alvöru valkost í samgöngum. Einhvers konar hálfkák einkennir þetta allt saman.
Lesa meira…
Staðgöngumæðrun – langt frá því að vera einfalt mál
Staðgöngumæðrun er funheitt mál og nú er svo komið að ekki er lengur hægt að komast hjá því að taka það til umræðu. Dagný Ósk Aradóttir Pind fjallar um þetta erfiða mál í grein dagsins: „Ýmis atriði varðandi barneignir hafa verið umdeild í fortíðinni en þykja nú sjálfsögð, til dæmis tæknifrjóvgun.”
Lesa meira…
Endurskoðun skattkerfisins með kynjagleraugum
Í grein dagsins fjallar Dagný Ósk Aradóttir Pind á áhrif skattkerfisins á kynjajafnrétti. „Aðstæður á Íslandi á 21. öldinni eru alls ekki þær sömu og í Svíþjóð á 8. áratugnum. Konur eru almennt á vinnumarkaði og þurfa þess vegna ekki þessa hvatningu með skattkerfinu. Á hinn bóginn er staðreynd að launamunur kynjanna á Íslandi hefur lítið sem ekkert breyst á síðustu árum og mun fleiri konur en karlar vinna hlutastörf.„
Lesa meira…
Borgarahreyfingin missir sjónar á markmiðum sínum
Dagný Ósk Aradóttir á grein dagsins að þessu sinni. Í henni fjallar hún um stutta sögu Borgarahreyfingarinnar og hvernig flokkurinn stefnir óðfluga í átt að sjálfstortímingu: Nú óttast sennilega margir, og aðrir eflaust vona, að Borgarahreyfingin sé búin að vera.
Lesa meira…
