Höfundur: Eva Bjarnadóttir
Börn byltingarinnar
Í grein dagsins veltir Eva Bjarnadóttir fyrir sér hvernig atburðum líðandi stunda verði minnst í framtíðinni: Verði sögubækur framtíðarinnar líkar því sem þær hafa verið, er því von á að saga efnahagshrunsins verði eitthvað á þá leið að trylltir útlendingar hafi rænt íslenska karlpeninginn og skilið hann eftir með sárt ennið.
Lesa meira…
Hvað segið’i strákar?
Listar yfir helstu viðmælendur fjölmiðla afhjúpa þá afgerandi kynjaslagsíðu sem þar er að finna. Á meðan hægrimenn telja hausa eftir vinstri-hægri kvarða stjórnmálaskoðana dregur Eva Bjarnadóttir upp kynjastækkunarglerið og reynir að koma auga á einhverjar konur.
Lesa meira…
Sagan sem fjölmiðlar segja
Fjölmiðlun hér á landi hefur verið talsvert mikið gagnrýnd fyrir að vera ekki nægilega djúp og gagnrýnin. Í grein dagsins fjallar Eva Bjarnadóttir um áhrif fjölmiðla á umræðuna: Fjölmiðlar hafa dagskrárvald, eins og Jón Gunnar Ólafsson bendir á í grein um fjölmiðlaumfjöllun um Icesave, en dagskrárvald felur í sér að hafa áhrif á hvaða mál fá athygli, sem hefur aftur áhrif á hvernig við upplifum heiminn.
Lesa meira…
Hannah Arendt og hið fullkomna heimilisleysi
Í grein dagsins fjallar Eva Bjarnadóttir um samhengi ríkisborgararéttar og mannréttinda og það hvernig fólk án ríkisfangs er í raun réttindalaust í alþjóðasamfélaginu. Það er því ekki nóg að vera mannvera til þess að njóta mannréttinda. Svo við fáum notið mannréttinda í raun verðum við að vera ríkisborgarar og til þess að njóta ríkisborgararéttar verður ríki að viðurkenna tilkall okkar til slíkra réttinda.
Lesa meira…
Gráu svæði staðgöngumæðrunar
Mikil umræða hefur átt sér stað um það hvort leyfa beri staðgöngumæðrun. Eva Bjarnadóttir bendir á að munurinn á milli staðgöngumæðrun í velgjörðar- og gróðarskyni sé alls ekki nógu skýr: Á Íslandi þarf ekki að greiða sérstaklega fyrir heilbrigðisþjónustu við barnshafandi konur, en ef litið er til almennra viðmiða má tína til ýmsan “tengdan kostnað”, svo sem meðgönguföt, jógatíma eða meðgöngusund.
Lesa meira…