Höfundur: Eva H. Baldursdóttir


Eva H. Baldursdóttir

er fædd í Reykjavík þann 16. júni 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla árið 2003 og tók diploma gráðu í spænskum fræðum við Háskólann í Barcelona árið 2004. Þá lauk Eva magister juris gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2009. Eva er starfsmaður stjórnlaganefndar, varaformaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar og situr í Menningar- og ferðamálaráði fyrir Samfylkinguna.

Stærstu hagsmunamál ungs fólks

Í apríl mun vefritið einbeita sér að ungu fólki. Eva Baldursdóttir ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og skrifar um stærsta hagsmunavanda ungs fólks.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Hlutverk ríkisins á víðsjárverðum tímum II

Grein dagsins er annar hluti greinar Evu H. Baldursdóttur.

Ef meirihluti heimsins afneitar að fjármagn skuli safnast á hendur fárra aðila sem skapi ójafnvægi á milli dreifingu gæða heimsins, þá getur heimurinn komið í veg fyrir það og sama gildir um íslensku þjóðina.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Hlutverk ríkisins á víðsjárverðum tímum

Í grein vikunnar veltir Eva H. Baldursdóttir upp spurningum um hvert hlutverk ríksins sé og enn fremur hvert sé þá hlutverk okkar, sem tannhjól samfélagsins.

Greinin birtist í tveimur hlutum. Mun sá seinni birtast á fimmtudaginn næstkomandi.

Þjóðin, fólkið – ákveður strúktúrinn og að undangegnu ferli gengst undir samfélagssáttmála og viðurkennir því t.a.m. valdbeitingu lögreglu meðal annars af þeirri ástæðu að almenningur hefur játað að heildarhagsmunir séu af því að menn drepi ekki, fremji ekki rán, hóti o.s.framv
Lesa meira…

Birtist í Lög og regla, Lýðræði, Samfélagið, Stjórnskipulag |

Týnda kynslóðin

Eva H. Baldursdóttir um kynslóðina sem tekur við landinu, uppgang, allsnægtir, hráskinku, Nilla, Blackberry síma, bílastyrki og sjálfhverfu: Mín kynslóð vill líka skemmta sér. Vúhú eða jafnvel whoop whoop, áfram hámarkshamingja. Hún vill djamm í kvöld og djamm á morgun og líka hinn og hinn og hinn. Og hún vill fá það strax. Ekki neitt leiðinlegt! Ekkert stjórnmálakjaftæði, allir stjórnmálamenn eru leiðinlegir.
Lesa meira…

Birtist í Fjölmiðlar og fréttamennska, Mambó, Menning, Tilkynningar, Tæpitungulaust |

Um ástina

Ástin er til umfjöllunar hjá Evu H. Baldursdóttur á Vefritinu í dag: ,,Það vekur furðu mína hversu lítið hefur verið fjallað um ástina á fræðilegan hátt í samtímanum. Maðurinn hlýtur að velta fyrir sér þróun ástarinnar í takt við samfélagið, en á tímum sykursætrar tyggjóástar að hætti Hollywood, þeim ógrynni valkosta sem blasa við kynslóðunum, þróun fjölskyldumengis á annan hátt en vísitölufjölskyldunnar, hlýtur að vera þörf á slíkum vangaveltum.”
Lesa meira…

Birtist í Menning |