Höfundur: Garðar Stefánsson


Garðar Stefánsson

er fæddur 15. júlí árið 1984. Hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 2004, B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2008 og M.A. í markaðs- og nýsköpunarfræðum frá Háskólanum í Árósum árið 2011.

Ekki borða viðbjóð um jólin

Í síðustu grein Vefritsins fyrir jól minnir Garðar Stefánsson lesendur á hvaðan hátíðarmaturinn kemur.

Ég er kjötæta og ég geri mér grein fyrir því að með því að neyta kjöts þá hefur dýr verið drepið. Þetta er kaldur sannleikur og Morrisey orðaði það kannski best “meat is murder”. Ef maður er kjötæta á annað borð þýðir það að hver biti af kjöti sem maður kyngir skapar eftirspurn eftir því að dýr sé framleidd sem matvara og þeim svo slátrað.
Lesa meira…

Birtist í Heilbrigði, Neysluhyggja, Umhverfið |

Möguleikar íslenskrar matarmenningar

Í stað þess að fjalla um stjórnlagaþing, niðurskurð Reykjavíkurborgar eða annað í þeim dúr þá fjallar Garðar Stefánsson um möguleika íslenskrar matarmenningar til þess að sækja á ný mið: Fólk kann að meta hefðir og vita hvað stendur á bakvið framleiðslu neysluvara. Aðgreining er málið og eitthvað sem íslenskir matvöruframleiðendur –hvort sem þeir eru að framleiða fyrir íslenskan eða erlendan markað – ættu að einbeita sér í að gera.
Lesa meira…

Birtist í Atvinnulífið, Samfélagið, Umhverfið |

„Gallabuxnahagfræði”

Í grein dagsins ræðir Garðar Stefánsson um skort á umræðu um efnahagsmál á mannamáli. Hann telur skorta „gallabuxnahagfræðinga“ sem geta losað sig við menntahrokann og uppskrúfað málfar. „Það er eins og íslenskir „stjörnuhagfræðingar” geri ekki greinarmun á hinu fræðilega og hinu almenna umhverfi. Útkoman er að íslenskar efnahagsfréttir og útskýringar eru oft hlaðnar flóknum skilgreiningum og útúrdúrum.
Lesa meira…

Birtist í Fjölmiðlar og fréttamennska, Viðskipti og efnahagsmál |

Norræn ættleiðing á í­slenskum námsmönnum

Kjör stúdenta hafa verið óvenju mikið í­ umræðunni sí­ðustu vikunna og þá . Ljóst þykir að nýjir lánasjóðssamningar þykja afar slæmir fyrir stúdenta og lí­tur allt út fyrir að þeir sem þurfa að treysta á námslán næsta vetur verði að
Lesa meira…

Birtist í Mannréttindi, Menntun |