Höfundur: Heiðar Lind Hansson


Heiðar Lind Hansson

er fæddur 23. júní 1986. Hann lauk BA í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og stundar nú MA nám í alþjóðasögu við LSE í London.

Skyldulesningin: Fjör fram í gröfina

Heiðar Lind Hansson las nýlega bókina Amusing Ourselves to Death: Public Discourse in the Age of Show Business eftir Neil Postman. Hann lýsir í pistlinum af hverju bókin ætti að vera skyldulesning: Sökum hraðrar útbreiðslu sjónvarps í Bandaríkjunum og sýnilegs áhrifamáttar þessa miðils, taldi Postman að nýtt öflugt sóma hefði í raun litið dagsins ljós: miðill, tæki eða jafnvel nýtt „lyf” til að stjórna fólkinu.
Lesa meira…

Birtist í Samfélagið |

Hvernig má laga umræðu um Ísland og umheiminn?

Umræða um stöðu Íslands í umheiminum hefur lengi verið á villigötum. Í grein dagsins á Vefritinu áréttar Heiðar Lind Hansson nokkrar staðreyndir um hvernig það kom til að Ísland varð fullvalda og sjálfstætt, staðreyndir sem vilja gleymast í heitfengri umræðu um stöðu lands og þjóðar. „Stóra verkefni þessarar hliðar íslenskrar stjórnmálamenningar, sem hér hefur verið rakin, er að fá viðurkenningu á þessu atriði: Íslenskt fullveldi er upp á náð og miskunn alþjóðasamfélagsins komið í eiginlega öllum atriðum. Öðruvísi kemst umræðan um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna ekki á skynsamlegt plan.“
Lesa meira…

Birtist í Samfélagið, Ísland og umheimurinn |

Umbreyting í­slenskrar stjórnmálamenningar er hafin

Stjórnmálamenningin er í­ gerjun þessa dagana í­ kjölfar bankahruns og uppstokkunar í­ sí­ðustu sveitarstjórnarkosningum. Í grein dagsins veltir Heiðar Lind Hansson vöngum yfir hvert í­slensk stjórnmál stefna. „Kreppa í­slenskrar stjórnmálamenningar er hjá flokkunum og hjá almenningi. Efling stjórnmálamenningarinnar á ekki einungis að fara fram innan flokkana; hún þarf lí­ka að fara fram innan í­ huga hvers og eins Íslendings. Sem betur fer er vinnan hafin, en mikið starf þó fyrir höndum.„
Lesa meira…

Birtist í Lýðræði, Samfélagið, Stjórnskipulag |