Höfundur: Jón Eðvald Vignisson
Nýsköpun í stjórnmálum
Ekki er aðeins þörf á smávægilegum breytingum í stjórnmálunum heldur þarf að leita út fyrir kassann, taka áhættu og hreyfa við gamla kerfinu. Í grein dagsins fjallar Jón Eðvald Vignisson um sprotaframboð og nýsköpun í stjórnmálum.
Mín skoðun er sú að það sé einmitt brýn þörf á nýsköpun í stjórnkerfinu, til að gera það skilvirkara og einfaldlega betra. Þótt mikilvægt sé að sinna málefnum líðandi stundar tel ég það besta sem við getum gert fyrir samfélagið okkar til lengri tíma vera að þróa stjórnkerfið. Þannig getum við bætt samvinnu, komið fleiru í verk og fengið fleira gott fólk til að starfa við stjórnmál.
Lesa meira…
Jafnrétti úrkynjana
Jón Eðvald Vignisson er hugsi yfir jafnréttisbaráttunni og þeim staðalímyndum sem haldið er á lofti á vefum á borð við bleikt.is. Í stað þess að bölsótast yfir því vill hann nýta tækifærið og skapa umræðu um jafnréttismál. Með það fyrir augum og til að sýna betur hversu brengluð kynjahlutverkin geta verið höfum við félagarnir því sett upp sérstaka bloggsíðu. Þangað er efni af bleikt.is sjálfvirkt fært yfir en umpólað svo að vísunum í karla og konur er víxlað.
Lesa meira…
Aðlögun, þróun eða þróun
Aðlögun er ekki það sama og þróun, hvorki í náttúrunni né í stjórnmálum. Í grein dagsins bendir Jón Eðvald Vignisson á að gamaldags stjórnmálamenn hafa ekki þróast í ljósi breyttra aðstæðna í stjórnmálum, heldur einfaldlega lagað sig að nýjum veruleika. „Hanna Birna og aðrir eru nú að aðlagast breyttum aðstæðum. Þau ætla sér ekki að þróast til að vinna með Besta flokknum, heldur munu þau aðlagast í þeim tilgangi að eyða þessum nýja áhrifavaldi og fá gamla leikinn sinn aftur. Það er alltaf auðveldara að aðlagast heldur en að þróast og þroskast, svo að aðlögun verður alltaf náttúrulegt viðbragð stjórnmálamanna.“
Lesa meira…