Höfundur: Sema Erla Serdar


Sema Erla Serdar

er fædd 4. september árið 1986. Hún lauk stúdentsprófi frá MH árið 2006, B.A. í Stjórnmálafræði frá HÍ árið 2010 og MSc í European Union Politics and Law við Edinborgarháskóla.

Ísland vs. ESB: Bardaginn um framtíðina

Evrópusambandið rústar Íslandi í bardaganum um framtíðina með ódýrari mat, lægri vöxtum og engum tollum. Sema Erla Serdar skrifar í grein dagsins um fjölmarga kosti þess að Ísland gangi í Evrópusambandið.
Lesa meira…

Birtist í Viðskipti og efnahagsmál, Ísland og umheimurinn |

Sameinuð stöndum vér í Evrópu

Evrópudagurinn er í dag og í tilefni þess skrifar Sema Erla Serdar um tilgang og þróun Evrópusambandsins: “Í dag eru sextíu og eitt ár liðin frá yfirlýsingu Roberts Schumans. Á þeim tíma hefur Evrópusamruninn þróast og breyst, sem og breytt úr sér til allra heimshorna. Evrópusambandið felur í sér bæði efnahagslega og pólitíska samvinnu, en einnig svo miklu meira.”
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Fjölmenning, Ísland og umheimurinn |

Obama + Osama = engar reglur?

Í grein dagsins fjallar Sema Erla Serdar um viðbrögð almennings og þjóðarleiðtoga við dauða Osama bin Laden: „Hvenær var það ákveðið að gefa skít í mannréttindi, alþjóðalög, dómstóla, réttlæti og virðingu fyrir mannlífi? Nú er ég alls enginn stuðningmaður bin Ladens né Al-kaída, en ég er hins vegar stuðningsmaður mannréttinda, jafnréttis og friðar, og sama um hvern ræðir, þá á það sama að ganga yfir alla.“
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Mannréttindi, Stríð og friður |

Ísland: Gestur í Evrópusambandinu

Í grein dagsins fjallar Sema Erla Serdar um upphaf og tilgangi Evrópusambandsins sem snýst um mikið meira en tollbandalag og sameiginlegan gjaldmiðil: Fjórfrelsið stendur fyrir frjálsa för fólks, varnings, þjónustu og fjármuna, milli aðildarríkjanna, sem þýðir fyrir hinn venjulega borgara Evrópusambandsins að hann getur flutt á milli ríkja Evrópusambandsins, hvort sem er til þess að fara í nám eða til að vinna, án vandkvæða.
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Ísland og umheimurinn |

… Það sem fyrir okkur er haft…

Hæ, hó og jibbý jei og jibbýýý jei… Það er kominn 19. júní­! Saga Garðarsdóttir skrifar í­ dag um konur og fjölmiðla. Hún fjallar um galdratöluna 30/70 og lýsir eftir nokkrum þekktum fyrrum fjölmiðlakonum sem hafa yfirgefið stéttina. „Hvað hefur
Lesa meira…

Birtist í Jafnrétti, Lýðræði |