Höfundur: Sölvi Karlsson
Landflótti ungs fólks?
Íslendingar eru að upplifa landflótta. Gerir það spurninguna um Evrópusambandsinngöngu mikilvægari eða ekki?
Það er kreppa á Íslandi. Atvinnuleysi er hærra en nokkru sinni áður, og allt í einhverju volli. Og út af því er fólk víst að flýja land, sérstaklega ungt fólk. Reyndar hef ég ekki tekið mikið eftir því: Íslendingar hafa alltaf farið mikið til útlanda og halda því áfram, svo koma þeir aftur heim.
Lesa meira…
Efnisrýr umræða
Í helgarumfjöllun Vefritsins fjallar Sölvi Karlsson um erlenda fjárfestingu og eignarréttinn.
Umræða um erlenda fjárfestingu kemur reglulega upp á Íslandi. Það virðist sem svo að til séu tvær fylkingar um þetta efni: Annars vegar er fólk sem er fylgjandi erlendri fjárfestingu vegna þess að hún sé „innspýting í efnahagslífið,“ og hins vegar fólk sem hefur áhyggjur af „erlendum yfirráðum“ yfir auðlindum af ýmsum toga.
Lesa meira…
Réttlæti, refsing og betra samfélag
Í grein dagsisn veltir Sölvi Karlsson fyrir sér refsingum í íslenska réttarkerfinu og hvort þær skili tilætluðum árangri: Þó að innan íslenskra fangelsa starfi án efa margt fært fólk sem hefur ekkert nema góðar hugsjónir að leiðarljósi, er kerfið sjálft byggt á röngum forsendum. Við höfum fyrir löngu ákveðið að hefnd sé ekki viðeigandi [...] En kerfið er enn byggt á hugmyndinni um að refsa brotamanni, frekar en hugmyndinni um að vernda samfélagið.
Lesa meira…
Lýðræði í Miðausturlöndum?
Mótmæli hafa hrakið forseta Túnis frá völdum, og nú virðist Egyptaland ætla að fylgja í kjölfarið. Í grein dagsins veltir Sölvi Karlsson fyrir sér umróti í Miðausturlöndum: Hvernig svo sem fer, þá er ljóst að byltingarnar í Túnis og Egyptalandi eru keyrðar áfram af fólkinu – almenningi. Það eru ekki stjórnmálaflokkar eða herinn sem eru breytingaraflið. Og það eru heldur ekki Bandaríkin, Evrópusambandið eða Rússland. Það er fólkið á götunni sem krefst þess að á það sé hlustað.
Lesa meira…
Kosningar í landinu sem Evrópa gleymdi
Tími einræðisherranna er ekki liðinn í Evrópu. Íbúar Hvítarússlands búa við ofríki manns sem sífellt gengur á frelsi og réttindi sem fólki á Vesturlöndum finnast sjálfsögð, og nú um helgina var hann endurkjörinn forseti landsins með tæp 80% atkvæða. Sölvi Karlsson fór til Hvítarússlands í haust og lýsir ástandinu í landinu hér á Vefritinu.,,Á meðan Hvítarússland er það lögregluríki sem það er munu kosningar á vegum einræðisstjórnarinnar aldrei geta verið neitt annað en plat. Í Hvítarússlandi er lýðræði ekki til. Þetta er Evrópa, við lok árs 2010.”
Lesa meira…
