Bölvaður bjórinn

Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um lögleiðingu bjórsins fyrir rúmum 17 árum sí­ðan. Segir meðal annars í­ greininni: „Þegar frumvarpið varð loksins að lögum hafði t.a.m. breytingartillaga um að þjóðin ætti að eiga sí­ðasta orðið felld með einungis einu atkvæði við afgreiðslu málsins hjá neðri deild þingsins. Mótbárur þingmanna (og fjölmargra samtaka og einstaklinga) voru margví­slegar eins og gefur að skilja, en meginstefið var þó það að taumlaus drykkja myndi fylgja í­ kjölfarið með tilheyrandi eymd og volæði.” Skömmu eftir að ég varð sex ára gamall voru lög(1) samþykkt á Alþingi sem leiddu til þess að almennur innflutningur og sala á bjór urðu leyfileg á Íslandi frá og með 1. mars 1989. Ein af minni fyrstu ljóslifandi minningu tengist reyndar þeim viðburði, en þá mætti „háöldruð” systir mí­n með tvo stórmeistara í­ skák á heimilið eftir að hafa nýtt sér nýfengið frelsið og voru þau öll vel við skál. Skákáhugamaðurinn ég heimtaði vitanlega að tefla við stórmeistarana og var ég meira að segja næstum því­ búinn að hafa annan þeirra undir í­ þokkabót. Þrátt fyrir afar takmarkaðan skilning á viðfangsefninu varð ég strax í­ kjölfarið þeirrar skoðunar að bjórinn væri nú hið besta mál – þó það nú væri, hann tryggði mér næstum því­ sigur á skákmeistara!

Morgunblaðið, 19. aprí­l 1988Þó að málið væri alveg borðliggjandi fyrir drengstaulanum mér þá var það nú ekki svo um alla. Frumvörp um lögleiðingu bjórsins höfðu margsinnis verið lögð fram á Alþingi og verið hafnað á mismunandi stigum – kæfð með málþófi, sendingum á milli efri og neðri deildar þingsins og ennfremur voru mikil áhöld um hvort ætti að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Þegar frumvarpið varð loksins að lögum var t.a.m. breytingartillaga um að þjóðin ætti að eiga sí­ðasta orðið felld með einungis einu atkvæði við afgreiðslu málsins hjá neðri deild þingsins. Mótbárur þingmanna (og fjölmargra samtaka og einstaklinga) voru margví­slegar eins og gefur að skilja, en meginstefið var þó það að taumlaus drykkja myndi fylgja í­ kjölfarið með tilheyrandi eymd og volæði.

Þrátt fyrir algenga söguskoðun voru þeir sem voru mótfallnir bjórfrumvarpinu svokallaða ekki allir afturhaldsamir allaballar, nema sí­ður sé. Af 17 þingmönnum sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu eftir þriðju umræðu í­ neðri deild þingsins (23 voru því­ samþykkir) voru fjórir þingmenn Borgaraflokksins, þrí­r þingmenn Framsóknarflokksins, þrí­r þingmenn Alþýðuflokksins, tveir þingmenn Alþýðubandalagsins, þrí­r þingmenn Sjálfstæðisflokksins (allt fyrrv. ráðherrar), einn þingmaður Kvennalistans og Stefán Valgeirsson, eini þingmaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju. Það er því­ ljóst að andstaðan við lögleiðingu bjórsins teygði sig í­ alla kima samfélagsins og spurði hvorki um stétt né stjórnmálaskoðanir.

Bregðum okkur nú aftur til nútí­ðarinnar, 17 árum eftir að bjórbanninu var aflétt. Ég leyfi mér að fullyrði að nú til dags þyki flestum bannið, sem varði í­ tæpa þrjá aldarfjórðunga, vera broslegt í­ besta falli. Bjórinn er enda með vinsælli drykkjum þjóðarinnar og er allt að því­ ómissandi við hvers kyns mannfagnað. Þannig seldust rúmlega 13 milljónir lí­tra af drykknum í­ verslunum ÁTVR í­ fyrra (2), sem jafngildir um 60 lí­trum á hvern Íslending yfir 18 ára aldri. Það er hvorki meira né minna en einn lí­till bjór (33cl) annan hvern dag allt árið um kring.

Hvar er allt volæðið sem átti að heltaka í­slenskt þjóðfélag gæti einhver spurt. (3)

Góð spurning gæti einhver annar svarað. Ætli það sé ekki sama volæðið og gárungarnir segja að vitji þjóðarinnar þegar bjórinn verður loksins fáanlegur í­ matvöruverslunum?

—-
(1) Lögin: http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=110&mnr=293
(2) Talan nær ekki til sölu heildsala til annarra aðila en ÁTVR. Til samanburðar má nefna að árið 2005 voru um 46 milljónir lí­trar seldir af gosdrykkjum og 35 milljón lí­trar af mjólkurdrykkjum.
(3) Það skal tekið fram að höfundur er á engan hátt að gera lí­tið úr þeim skaðræðissjúkdóm sem áfengissýkin er. Hann telur það þó hvorki skilvirkt, sanngjarnt né réttlætanlegt að meðhöndla alla landsmenn við sjúkdóm sem nokkur prósent þjóðarinnar þjást af.


Agnar Freyr Helgason

er fæddur í Reykjavík þann 8. apríl 1982. Hann hefur lokið námi í hagfræði og alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og í samanburðarstjórnmálum frá London School of Economics í Bretlandi. Hann leggur nú stund á doktorsnám í stjórnmálafræði við Ohio State University í Bandaríkjunum.
Þessi grein birtist í Heilbrigði, Tilkynningar, Viðskipti og efnahagsmál. Varanleg slóð.