Efnisflokkur: Atvinnulífið

Eiga útgerðir að greiða eðlilegt leigugjald?

Í grein dagsins fjallar Arnaldur Sölvi Kristjánsson um frumvarp Sjávarútvegsráðherra um hækkun auðlindagjalds og telur útgerðin eigi að greiði sanngjarnt veiðigjald fyrir afnot af auðlind þjóðarinnar: Í dag greiða útgerðarfyrirtæki mun minna í auðlindagjald en eðlilegt er (markaðsverð afnota er mun hærra en núverandi gjald). Þannig er ekki tekið eðlilegt afgjald af notkun á fiskveiðiauðlindinni. Það getur ekki talið eðlilegt sé tekið mið af því að auðlindin er skilgreind sem eign þjóðarinnar í lögum.
Lesa meira…

Birtist í Atvinnulífið, Auðlindir, Tilkynningar |

Námslán og forgangsröðun til menntunar

Í grein dagsins fjallar Guðfinnur Sveinsson um nýtt frumvarp, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt, sem kveður á um 10% hækkun námslána: Erum við beinlínis að halda fólki frá námi með því að halda námslánunum í lágmarki? Erum við óbeint að hvetja fólk til aðgerðarleysis og að skrá sig á atvinnuleysisbætur, því það er betur greitt fyrir að vera atvinnulaus en að vera í námi?
Lesa meira…

Birtist í Atvinnulífið, Menntun, Samfélagið |

Fiskveiðistjórnun eftir fyrningu 3. hluti

Síðasti hluti greinar Sverris Bollasonar um kvótakerfið birtist í dag: Það er mikilvægast nú að horfa til framtíðar og búa til fiskveiðistjórnunarkerfi sem sátt getur verið um til langs tíma. Almenningur þarf að fá tækifæri til að sættast við útgerðirnar og fá að gera sanngjarnar en raunhæfar kröfur. Útgerðin þarf að viðurkenna þörfina fyrir uppgjör en má gjarnan hjálpa til við að móta framtíðina, eftir uppgjörið.
Lesa meira…

Birtist í Atvinnulífið, Auðlindir, Viðskipti og efnahagsmál |

Fiskveiðistjórnun eftir fyrningu 2. hluti

Ríkisstjórnin afgreiddi á dögunum nýtt kvótafrumvarp. Í tilefni þess birtist nú annar hluti greinar Sverris Bollasonar um kvótakerfið í sjávarútvegi: Að mínu mati eru það tveir þættir sem hafa skapað ósætti um kvótakerfið. Hið félagslega ójafnvægi sem kvótakerfið er talið hafa valda, einnig kallað byggðaröskun eða bara flóttinn úr sjávarþorpunum er eitt. Hitt og það sem ég tel mikilvægara og vega þyngra: Það beiska bragð ósanngirni sem tilraun útgerðarmanna til að slá eign sinni á auðlindina hefur skilið eftir sig.
Lesa meira…

Birtist í Atvinnulífið, Auðlindir, Viðskipti og efnahagsmál |

Mín framtakssama og fjölhæfa kynslóð

Bjarni Þór Pétursson svarar grein Evu Baldursdóttur hér á Vefritinu og tekur upp hanskann fyrir kynslóð sína. „Þegar ég horfi á mína kynslóð þá sé ég ekki Völu Grand, Silvíu Nótt, Gillz, Jón Stóra og Nilla (eða aðrar tilbúnar eða hálf tilbúnar persónur) sem fánabera. Ég sé hafsjó af ungu vel menntuðu og hugmyndaríku fólki sem iðar af lífi og þann kraumandi pott sprotafyrirtækja, lítilla og ört vaxandi fyrirtækja og það á ótrúlega víðu sviði, sem einungis þarfnast efnahagslegs stöðugleika til að blómstra.“
Lesa meira…

Birtist í Atvinnulífið, Menning, Samfélagið |