Efnisflokkur: Erlend og alþjóðastjórnmál

Landflótti ungs fólks?

Íslendingar eru að upplifa landflótta. Gerir það spurninguna um Evrópusambandsinngöngu mikilvægari eða ekki?

Það er kreppa á Íslandi. Atvinnuleysi er hærra en nokkru sinni áður, og allt í einhverju volli. Og út af því er fólk víst að flýja land, sérstaklega ungt fólk. Reyndar hef ég ekki tekið mikið eftir því: Íslendingar hafa alltaf farið mikið til útlanda og halda því áfram, svo koma þeir aftur heim.
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Ísland og umheimurinn |

Stríðið gegn konum

Nanna Teitsdóttir fylgist með bandarískum stjórnmálum og segir hér frá stríði repúblikana gegn fóstureyðingum og sjálfsákvörðunarrétti kvenna. Nýlega samþykkti fulltrúadeild Bandaríkjaþings frumvarp H.R. 358 þar sem læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum er lagalega gert kleift að neita ófrískum konum um fóstureyðingu þrátt fyrir að líf konunnar velti alfarið á að fóstrinu sé eytt.
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Femínismi, Jafnrétti |

Kosningaárið 2012

Eftir nákvæmlega eitt ár, þriðjudaginn 6. nóvember 2012, munu Bandaríkjamenn ganga til kosninga. Þórir Hrafn Gunnarsson spáir og spekúlerar í bandarísk stjórnmál í grein dagsins: „Mikil ólga hefur verið í Repúblikanaflokknum síðustu tvö árin. Áhrif Tepokahreyfingarinnar eru veruleg og hafa haft þau áhrif að erfiðara er fyrir hófsamari Repúblikana að ná brautargengi.“
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Helgarumfjöllun |

Sameinuð stöndum vér í Evrópu

Evrópudagurinn er í dag og í tilefni þess skrifar Sema Erla Serdar um tilgang og þróun Evrópusambandsins: “Í dag eru sextíu og eitt ár liðin frá yfirlýsingu Roberts Schumans. Á þeim tíma hefur Evrópusamruninn þróast og breyst, sem og breytt úr sér til allra heimshorna. Evrópusambandið felur í sér bæði efnahagslega og pólitíska samvinnu, en einnig svo miklu meira.”
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Fjölmenning, Ísland og umheimurinn |

Obama + Osama = engar reglur?

Í grein dagsins fjallar Sema Erla Serdar um viðbrögð almennings og þjóðarleiðtoga við dauða Osama bin Laden: „Hvenær var það ákveðið að gefa skít í mannréttindi, alþjóðalög, dómstóla, réttlæti og virðingu fyrir mannlífi? Nú er ég alls enginn stuðningmaður bin Ladens né Al-kaída, en ég er hins vegar stuðningsmaður mannréttinda, jafnréttis og friðar, og sama um hvern ræðir, þá á það sama að ganga yfir alla.“
Lesa meira…

Birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Mannréttindi, Stríð og friður |