Efnisflokkur: Erlend og alþjóðastjórnmál
Hannah Arendt og hið fullkomna heimilisleysi
Í grein dagsins fjallar Eva Bjarnadóttir um samhengi ríkisborgararéttar og mannréttinda og það hvernig fólk án ríkisfangs er í raun réttindalaust í alþjóðasamfélaginu. Það er því ekki nóg að vera mannvera til þess að njóta mannréttinda. Svo við fáum notið mannréttinda í raun verðum við að vera ríkisborgarar og til þess að njóta ríkisborgararéttar verður ríki að viðurkenna tilkall okkar til slíkra réttinda.
Lesa meira…
Hinsegin Evrópusamstarf
Í grein dagsins beinir Hilmar Magnússon sjónum sínum að áhrifum aðildarumsóknar ESB á frjáls félagasamtök út frá Samtökunum ‘78 – félags hinsegin fólks á Íslandi: Ljóst er að umsóknin að ESB hefur þegar breytt aðkomu einstakra félagasamtaka hér heima að mannréttindastarfi á Evrópuvettvangi með því að auka og dýpka það samstarf sem fyrir var. Möguleikarnir til þátttöku eru gríðarlegir og jafnvel má sjá fyrir sér að íslensk mannréttindasamtök geti miðlað af sinni reynslu og stutt þannig við þróunina í öðrum ríkjum.
Lesa meira…
Ísland: Gestur í Evrópusambandinu
Í grein dagsins fjallar Sema Erla Serdar um upphaf og tilgangi Evrópusambandsins sem snýst um mikið meira en tollbandalag og sameiginlegan gjaldmiðil: Fjórfrelsið stendur fyrir frjálsa för fólks, varnings, þjónustu og fjármuna, milli aðildarríkjanna, sem þýðir fyrir hinn venjulega borgara Evrópusambandsins að hann getur flutt á milli ríkja Evrópusambandsins, hvort sem er til þess að fara í nám eða til að vinna, án vandkvæða.
Lesa meira…
Stéttabarátta í Mjólkurríkinu
Í grein dagsins fjallar Þórir Hrafn Gunnarsson um pólitískan ágreining í Wisconsin vegna mikils niðurskurðar og baráttu fylkisstjórans gegn stéttarfélaga: Allir fjórtán þingmenn Demókrata í efri deildinni hafa flúið úr ríkinu og dveljast núna á óþekktum stað í Illinois ríki. Ástæðan fyrir þessum flótta er sú að þó að Repúblikanar hafi mikinn meirihluta í efri deildinni, þ.e. nítján þingmenn, þá þurfa þeir að hafa tuttugu þingmenn viðstadda þegar frumvarpið er tekið fyrir.
Lesa meira…
Írland: Eru breytingar í vændum?
Undanfarin misseri hafa Írar lent í svipuðum efnahagskröggum og Íslendingar, en nú eru kosningar á næsta leiti á Írlandi. Ásta Kristín Benediktsdóttir sendir línu frá Dublin og veltir fyrir sér stjórnarskránni írsku og stöðu jafnréttismála:,,Efnahagsástand og stjórnmál á Írlandi hafa komist reglulega í fréttirnar heima á Fróni undanfarið, enda er hughreystandi að vita af einhverjum í jafndjúpum skít og maður sjálfur.”
Lesa meira…