Efnisflokkur: Ísland og umheimurinn
Hvernig bregðast skal við súrmjólkurskorti og sturtuklefum á bersvæði
Þessi pistill er eins konar sjálfstætt framhald greinar sem birtist hér á Vefritinu fyrir tveimurvikum síðan og bar titilinn „101 mætir 701“ en þar fjallaði Gunnar Gunnarsson um mikilvægi þess að prófa nýja hluti og skipta öðru hverju um umhverfi.
Lesa meira…
Hjúkrun í Nairobi
Halla Tryggvadóttir fjallar um upplifun sína af því að fara til Nairobi í hjálparstarf.
En þegar í ferðalaginu felst hjálparstarf þar sem hlutverk manns er að sinna og hjúkra fátækustu íbúum borgarinnar Nairobi, þar sem finna má nokkur stærstu fátækrahverfi heims, er hægara sagt en gert að undirbúa sig. Í rauninni er það ekki hægt.
Lesa meira…
Blessuð sauðkindin
Á Vefritinu í dag fjallar Hrönn Guðmundsdóttir um fæðuöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar með íslensku sauðkindina í broddi fylkingar.
Miðað við stöðu mála í dag þarf ekki að undrast að samgöngur og flutningar skipti höfuðmáli varðandi fæðuöryggi þjóðarinnar, enda er bróðurpartur þess sem heldur íslensku þjóðinni réttu megin við hungurmörkin innflutt góss hvaðanæva að úr heiminum. Ef samgöngur brygðust gæti ekkert bjargað okkur – ekki einu sinni íslenska sauðkindin í allri sinni dýrð.
Lesa meira…
Til hamingju með daginn
Í tilefni af fullveldisdeginum fjallar Hrafn Stefánsson um hveru mikið er búið að flækja hugtakið í dag.
Á meðan þessi þróun hefur átt sér stað hefur fullveldishugtakið glatað einfaldri merkingu sinni og þvælst í umræðunni hér á landi jafnt sem annars staðar. Það hefur verið sérstaklega áhugavert að fylgjast með umræðunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu síðustu árin.
Lesa meira…
Sterkustu „druslur“ í heimi?
Björg Magnúsdóttir á Vefritsgrein dagsins. Hún skrifar um tvíbentar umfjallanir erlendis um íslenskar konur, klámvæðinguna og valið sem við stöndum frammi fyrir á hverjum degi. Staðreyndin er nefnilega sú að samhliða því að vera ógeðslega flottar og sterkar fara íslenskar konur heim með hverjum sem er þegar þær vilja. Ég þarf varla að draga fram senur úr miðbæ Reykjavíkur eftir miðnætti um helgar máli mínu til stuðning. En einhvern tímann á milli þess að íslenskar konur hófu innrás á vinnumarkaðinn og áður en bók Vörek kom út gerðist eitthvað.
Lesa meira…