Efnisflokkur: Jafnrétti
Trúarbragðarleysi er mannhyggja
Í grein dagsins hvetur Haukur Hólmsteinsson fólk til að íhuga trúarbragðahugtakið. Hann minnist á andalegheit, sannleikann og trúarbragðaskráningu.
Þegar ég skráði mig úr þjóðkirkjunni var mömmu minni brugðið. „Af hverju gerðiru það?“ Spurði hún. Ég svaraði einfaldlega: „Ég trúi ekki því sem stendur í biblíunni.“
Lesa meira…
Löggjafarvaldið og jafnréttisbaráttan
Í grein dagsins fjallar Eva Margrét Kristinsdóttir um hlutverk löggjafans í jafnréttisbaráttunni og lögfestingu kynjakvóta í stjórnum hlutafélaga.
Kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja er að fyrirmynd Norðmanna en þeir innleiddu hann árið 2004. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni í Osló hefur hækkað úr 9% árið 2004 í 36% árið 2009. Lögfesting kynjakvóta á Íslandi mun vissulega hafa jákvæð áhrif á jafnréttisbaráttuna.
Lesa meira…
Stríðið gegn konum
Nanna Teitsdóttir fylgist með bandarískum stjórnmálum og segir hér frá stríði repúblikana gegn fóstureyðingum og sjálfsákvörðunarrétti kvenna. Nýlega samþykkti fulltrúadeild Bandaríkjaþings frumvarp H.R. 358 þar sem læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum er lagalega gert kleift að neita ófrískum konum um fóstureyðingu þrátt fyrir að líf konunnar velti alfarið á að fóstrinu sé eytt.
Lesa meira…
Heimsyfirráð kvenna
Á laugardaginn kom út bókin Á Rauðum Sokkum – Baráttukonur segja frá sem fjallar um sögu nokkurra af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar. Halla Tryggvadóttir bendir í grein dagsins á hvernig réttindi kvenna sem okkur þykja nú sjálfsögð mættu eitt sinn mikilli andstöðu: Það sem meira er, orðræða andstöðunnar gefur til kynna að eini tilgangur jafnréttisbaráttunnar sé að veita konum forréttindi, á kostnað karla, og eigi hún því fátt skylt við jafnrétti.
Lesa meira…
Sannkallaður skvísudrykkur
Í Vefritsgrein þessa þriðjudags veltir Jón Þór Pétursson fyrir sér tvíbentum tilraunum Fréttatímans í jafnréttismálum. Þversögn formálans er þá fólgin í því að hún dregur fram ótrúlegar klisjur um kynin á sama tíma og hann hreykir sér af því að koma konum á framfæri.
Lesa meira…