Efnisflokkur: Jafnrétti
Heimsyfirráð kvenna
Á laugardaginn kom út bókin Á Rauðum Sokkum – Baráttukonur segja frá sem fjallar um sögu nokkurra af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar. Halla Tryggvadóttir bendir í grein dagsins á hvernig réttindi kvenna sem okkur þykja nú sjálfsögð mættu eitt sinn mikilli andstöðu: Það sem meira er, orðræða andstöðunnar gefur til kynna að eini tilgangur jafnréttisbaráttunnar sé að veita konum forréttindi, á kostnað karla, og eigi hún því fátt skylt við jafnrétti.
Lesa meira…
Sannkallaður skvísudrykkur
Í Vefritsgrein þessa þriðjudags veltir Jón Þór Pétursson fyrir sér tvíbentum tilraunum Fréttatímans í jafnréttismálum. Þversögn formálans er þá fólgin í því að hún dregur fram ótrúlegar klisjur um kynin á sama tíma og hann hreykir sér af því að koma konum á framfæri.
Lesa meira…
Að (fá að) vera öðruvísi
Í grein dagsins fjallar Ásta Kristín Benediktsdóttir um hinsegin fólk og öfugugga: Hommar og lesbíur eru öðruvísi, þó að þið haldið að ykkur finnist það ekki. Í okkar samfélagi er gagnkynhneigð norm. Fólk kjáir framan í lítil börn og segir án þess að hugsa: „ó, hvað þessi drengur á eftir að heilla margar stúlkur þegar hann verður stór!“ Konur eru spurðar „átt þú mann?“ en ekki „átt þú maka?“ eða „áttu konu?“ – og karlmenn eru sömuleiðis inntir eftir eiginkonum eða kærustum. Langflestir gera ráð fyrir að aðrir (og þeir sjálfir) séu gagnkynhneigðir þar til annað kemur í ljós.
Lesa meira…
Jafnrétti úrkynjana
Jón Eðvald Vignisson er hugsi yfir jafnréttisbaráttunni og þeim staðalímyndum sem haldið er á lofti á vefum á borð við bleikt.is. Í stað þess að bölsótast yfir því vill hann nýta tækifærið og skapa umræðu um jafnréttismál. Með það fyrir augum og til að sýna betur hversu brengluð kynjahlutverkin geta verið höfum við félagarnir því sett upp sérstaka bloggsíðu. Þangað er efni af bleikt.is sjálfvirkt fært yfir en umpólað svo að vísunum í karla og konur er víxlað.
Lesa meira…
Karlar – um konur – frá körlum – til kvenna
Á Vefritinu þennan mánudag birtist gestapistill eftir Áslaugu Björtu Guðmundardóttur. Umfjöllunarefnið er mörgu Vefritsfólki hugleikið: Jafnréttisbarátta kvenna og sú staðreynd að hennar er enn þörf.,,Ég veit ekki hvort við erum öll enn samsýrð þeirri aldagömlu hugmyndafræði að það sé fullkomlega eðlilegt að karlmenn segi konum hvernig þær eigi að vera og hvort við viljum að það séu skilaboð okkar til unglinga af báðum kynjum. Ég veit hins vegar með vissu að feminismi er ekki tímaskekkja á meðan skilaboð af þessu tagi eru til.
Lesa meira…