Efnisflokkur: Samfélagið
Hlutverk ríkisins á víðsjárverðum tímum
Í grein vikunnar veltir Eva H. Baldursdóttir upp spurningum um hvert hlutverk ríksins sé og enn fremur hvert sé þá hlutverk okkar, sem tannhjól samfélagsins.
Greinin birtist í tveimur hlutum. Mun sá seinni birtast á fimmtudaginn næstkomandi.
Þjóðin, fólkið – ákveður strúktúrinn og að undangegnu ferli gengst undir samfélagssáttmála og viðurkennir því t.a.m. valdbeitingu lögreglu meðal annars af þeirri ástæðu að almenningur hefur játað að heildarhagsmunir séu af því að menn drepi ekki, fremji ekki rán, hóti o.s.framv
Lesa meira…
Nýsköpun í stjórnmálum
Ekki er aðeins þörf á smávægilegum breytingum í stjórnmálunum heldur þarf að leita út fyrir kassann, taka áhættu og hreyfa við gamla kerfinu. Í grein dagsins fjallar Jón Eðvald Vignisson um sprotaframboð og nýsköpun í stjórnmálum.
Mín skoðun er sú að það sé einmitt brýn þörf á nýsköpun í stjórnkerfinu, til að gera það skilvirkara og einfaldlega betra. Þótt mikilvægt sé að sinna málefnum líðandi stundar tel ég það besta sem við getum gert fyrir samfélagið okkar til lengri tíma vera að þróa stjórnkerfið. Þannig getum við bætt samvinnu, komið fleiru í verk og fengið fleira gott fólk til að starfa við stjórnmál.
Lesa meira…
Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum
Í grein dagsins fjallar Lovísa Arnardóttir um skort á forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.
Barnaverndaryfirvöld gera auðvitað allt sem í þeirra valdi til að sporna við því að þessi misnotkun haldi áfram en þegar þeim skortir fjármagn og starfsfólk, þá er starfi þeirra augljóslega settar ákveðnar skorður.
Lesa meira…
Desember hugvekja
Á Vefritinu í dag skrifar Sigrún Skaftadóttir stutta hugvekju um hversdagshetjurnar sem við tökum alltof sjaldan eftir.
Þetta fólk er alls staðar. Hvort sem það er fólkið á Laugaveginum fyrir jólin að gefa kakó sem hlýjar manni í desemberfrostinu eða tónlistarmaðurinn sem spilar fyrir þig á erfiðum degi og nær hugsanlega að draga fram bros. Já, svo eru það líka hjálparsveitirnar sem eru á vakt allan sólarhringinn alla daga ársins, reiðubúnar að fórna eigin öryggi til þess að bjarga mannslífum. Þetta fólk er allt hetjur í mínum augum.
Lesa meira…
Misskipt framtíð – hér og nú
Framtíðin, neysluhyggjan, ljósaperan, jólin, hin martraðakennda dystópía… og allt þetta rusl – allt í einni grein eftir Erlu Elíasdóttur.
Þótt hinn feitari endi misskiptingarinnar snúi að okkur er hún jafnmikil staðreynd hér og þar. Við verðum að fara að gefa eitthvað á móti, eða réttara sagt gefa minna – gefa jörðinni minna af drasli. Ekki seinna, ekki í neinni fjarlægri framtíð eða hliðstæðum veruleika, heldur hér og nú .
Lesa meira…