Efnisflokkur: Tilkynningar
Hin ógurlegu bílastæði – af hræðsluvæðingu opinberra rýma
Í grein dagsins fjallar Helga Tryggvadóttir um alræmdu kvennastæðin í bílastæðakjallara Hörpu: Hins vegar er það svo að það er mun líklegra að vera nauðgað heima hjá sér en nokkurn tímann í bílastæðahúsi.
Lesa meira…
Innistæður á háskaslóð
Í grein dagsins veltir Sverir Bollason fyrir sér aldurspólitík og mikilvægi þess að hafa sanngjarnt og sjálfbært lífeyriskerfi: Kemur það á daginn að lífeyrissjóðakerfið er með útúrdúrum að mestu leyti byggt á því að afborganir húsnæðisskulda í dag er ætlað að vera uppistaðan í lífeyri morgundagsins. Hljómar dálítið eins og að fóðra grís á fimmhundruðköllum í von um að steikin verði stór og ljúffeng svo hún standi með manni gegnum elliárin.
Lesa meira…
Börn byltingarinnar
Í grein dagsins veltir Eva Bjarnadóttir fyrir sér hvernig atburðum líðandi stunda verði minnst í framtíðinni: Verði sögubækur framtíðarinnar líkar því sem þær hafa verið, er því von á að saga efnahagshrunsins verði eitthvað á þá leið að trylltir útlendingar hafi rænt íslenska karlpeninginn og skilið hann eftir með sárt ennið.
Lesa meira…
„Frábær nauðgun“
Hvernig notum við orðið nauðgum í daglegu tali, jafnvel í fjölmiðlum? Passa orðin „Frábær nauðgun“ saman? Í pistli dagsins útskýrir Björg Magnúsdóttir fyrir okkur af hverju henni finnst það ekki.
Lesa meira…
Eiga útgerðir að greiða eðlilegt leigugjald?
Í grein dagsins fjallar Arnaldur Sölvi Kristjánsson um frumvarp Sjávarútvegsráðherra um hækkun auðlindagjalds og telur útgerðin eigi að greiði sanngjarnt veiðigjald fyrir afnot af auðlind þjóðarinnar: Í dag greiða útgerðarfyrirtæki mun minna í auðlindagjald en eðlilegt er (markaðsverð afnota er mun hærra en núverandi gjald). Þannig er ekki tekið eðlilegt afgjald af notkun á fiskveiðiauðlindinni. Það getur ekki talið eðlilegt sé tekið mið af því að auðlindin er skilgreind sem eign þjóðarinnar í lögum.
Lesa meira…