Gyðingafordómar á Moggablogginu

Í grein dagsins fjallar Einar Örn Einarsson um Gyðingafordóma. Hann segir að umræðuna um Ísrael sé ekki oft á háu plani í­ í­slenskum vefmiðlum. „Margir halda því­ fram að aukning á Gyðingafordómum megi eingöngu rekja til aðgerða Ísraels-rí­kis. Sú fullyrðing er fáránleg. Í raun eins fáránleg og þegar að verjendur Ísraels rí­kis halda því­ fram að öll gagnrýni á Ísrael sé sprottin út frá Gyðingahatri. Því­ fer fjarri, enda hefur Ísraels-rí­ki gert sig sekt um fjölmarga hluti sem réttmætt er að gagnrýna.”

Þegar ég var að vinna að lengri grein fyrir næsta tí­marit Herðubreiðar lenti ég í­ spjalli við vini mí­na um almennt viðhorf á Íslandi gagnvart Gyðingum og Ísraelsrí­ki. Almennt séð virðist það viðhorf vera afskaplega neikvætt. Þegar ég reyndi aðeins að kynna mér þetta á bloggsí­ðum hjá fólki virtist oft vera ansi grunnt á stækum Gyðingafordómum.

Margir halda því­ fram að aukning á Gyðingafordómum megi eingöngu rekja til aðgerða Ísraels-rí­kis. Sú fullyrðing er fáránleg. Í raun eins fáránleg og þegar að verjendur Ísraels rí­kis halda því­ fram að öll gagnrýni á Ísrael sé sprottin út frá Gyðingahatri. Því­ fer fjarri, enda hefur Ísraels-rí­ki gert sig sekt um fjölmarga hluti sem réttmætt er að gagnrýna.

En hvernig er hægt að greina lögmæta gagnrýni á Ísrael frá gagnrýni sem er að vissu leyti byggð á Gyðingafordómum? Alan Dershowitz leggur í­ bók sinni The Case for Peace: How The Arab-Israeli Conflict Can Be Resolved til skilgreiningar á því­ hvernig greina megi þar á milli. Á meðal þeirra atriða sem Dershowitz segir benda til þess að gagnrýnin sé komin til vegna Gyðingafordóma nefndi hann:

  • Að halda því­ fram að Ísraelar séu verstir allra þjóða í­ einhverju jafnvel þótt það sé fjarri sannleikanum.
  • Þegar aðgerðum Ísraela er lí­kt við Nasista
  • Að vilja refsa Ísraelum einum fyrir hluti sem viðgangast í­ mörgum löndum og að gera þá kröfu að Gyðingar séu á einhvern hátt betri vegna sögu þeirra sem fórnarlamba.
  • Að kenna Ísrael um öll vandamál heimsins og ýkja áhrif deilnanna í­ Ísrael og Palestí­nu á alþjóðastjórnmál.
  • Þegar ákveðnar sterí­ótí­pur sem oft eru notaðar af Gyðingahöturum eru notaðar til að lýsa öllum stuðningsmönnum Ísraelsrí­kis. Svo sem þegar mikið er gert úr völdum Gyðinga um allan heim (t.d. í­ Bandarí­kjunum) eða þeir eru teiknaðir sem grimmir og ljótir gamlir menn með löng nef.

Í tengslum við greinina eyddi ég smá tí­ma í­ að skoða bloggfærslur tengdar fréttum af Ísrael og Palestí­nu á MBL.is. Margar þessara frétta virtust vera frétta-tilkynningar frá samtökunum Ísland-Palestí­na, þar sem sagt var af ævintýrum sjálfboðaliða þeirra samtaka. Aðrar voru helst af ferðalagi Barak Obama um svæðið og nýlegum árásum á Gaza.

Hérna fylgja með nokkur ummæli sem sýna að umræðan um Ísrael er oft ekki á háu plani á í­slenskum vefmiðlum. Hugsanlega er hægt að finna svipuð komment um Palestí­numenn, byggð á öðruví­si fordómum. Þar sem að um það hefur m.a.s. verið skrifuð bók þá ákvað ég að velja Gyðingahliðina á umræðunni. Tilvitnanirnar eru orðréttar og því­ hafa stafsetningarvillur ekki verið leiðréttar. Tilvitnanirnar fann ég allar á á um tveggja klukkustunda rápi um Moggabloggið með aðstoð Google.


Fyrst er það mýtan um hina almáttugu Gyðinga, sem allir þurfa að beygja sig undir í­ Bandarí­kjunum, þrátt fyrir að Gyðingar séu í­ raun aðeins 2,5% af í­búum Bandarí­kjanna.

Óskabarn BNA engu skárri en fyrri forsetar

Barack Hussein Obama er greinilega á sömu bylgjulengd og fyrri foreldrar Ísraels og ætlar hann sér að halda uppi þessari arfleyfð sem ætlar að vera seindræpari en Rasspútí­n. Ef marka má orð hans og gjarðir er hann mikill vinur lobbí­ista gyðinga í­ Bandarí­kjunum sem eru jú þeir sem krefjast þess hvað mest að Ísrael sé verndað gegn öllum sem ætla sér að vinna eitthvað gegn Ísrael. Það er lí­ka vitað að það er nánast ógjörningur að verða forseti Bændarí­kjanna án þess að hafa stuðning gyðinga og er þetta sagt án allra fordóma. Þetta virðist bara vera svona. Má vera að þessi fullyrðing virðist fordómafull en það er hún ekki, með henni er aðeins verið að sýna hve mikil völd gyðingar í­ Bændarí­kjunum hafa. Þeir eiga grí­ðarlegt fjármagn, stjórna mörgum stórum fyrirtækjum og blöðum svo fátt eitt sé nefnt.

Ekki séns!

þetta hlýtur að vera ein allsvakalegasta sýndarmennska sem til er. Bandarí­sk yfirvöld munu aldrei sjá til þess að Palestí­na öðlist sjálfstæði, og þar af leiðandi, sí­n eigin viðurkenndu landamæri. Ísraelar hafa í­ gegnum tí­ðina haft grí­ðarlegt tangarhald á bandarí­skum yfirvöldum. Peningarnir eru bara of stórir í­ þessum bransa…

Ofbeldi í­sraela tekur á sí­g ótrúlegustu myndir

Ég heyrði því­ fleygt að nokkrir þeirra “vina Villa vitlausa í­ Köben” sem skrifa undir “(IP-tala skráð)” af því­ að það er búið að loka hjá þeim aðganginum að Mbl.is/blogg, séu á launum. Það væri gaman að heyra hvort þeir peningar koma frá Köben, New York eða beint frá Ísrael!

Hvenær drepur maður börn?

Ísraelski herinn og Mossad leyniþjónustan eru tæknivæddustu og fullkomnustu drápsvélar heimsins í­ dag dyggilega studdum af bandarí­skum gyðingum


Næst er það algengt stef um að Gyðingar telji sig vera yfir aðrar þjóðir hafna. Menn mistúlka “Guðs útvalda þjóð” einsog það þýði að Gyðingar telji sig öðrum betri.

Framferði í­sraela

Gyðingar segjast eiga rétt á landsvæðinu sem var tekið frá Palestí­numönnum, því­;

1. Þeir séu guðs útvalda þjóð 2. Guð gaf þeim landið (má ég sjá afsalið?).

[og]

Þeirra framferði er í­slensku þjóðinni til skammar því­ við erum með stjórnamálasamband við þessa villimenn

Það minnkar einmitt árásirnar!

Ísraelar eru hálfvitar

[og]

Ég hef ekkert á móti gyðingum sem slí­kum, en Ísralesstjórn sýnir djöfullegan hroka og fí­flaskap haldandi því­ fram að þeir séu hin guðsvalda þjóð og ég veit ekki hvað og hvað

fordómar í­sraela

Það er dagljóst að í­sraelsmenn eru uppfullir af fordómum gagnvart öðrum þjóðum og telja sig öðrum þjóðum æðri. Þeir vilja ekki fyrirgefa og fyrirgefa ekkert.. Þeir hanga á gamla testamentinu eins og heilögum sannleika og nota hana til þess að fá afsökun til þess að misþyrma nágrannþjóðum sí­num. Israelar eru aumkunnarverð þjóð í­ alla staði.

[og]

Maður gæti alveg huxað sér heiminn án í­sraelsrí­kis :-)

Skyldi vera reiði í­ Ísrael yfir palestí­nsku börnunum…

Ah, auðvitað ekki, fyrir Ísraelsmönnum eru Palestí­numenn óæðri og þar af leiðandi óþarfi að gráta óæðri börn, drepin af Guðs útvöldu þjóð.

Af einhverjum ástæðum hef ég akkúrat enga samúð með Ísraelsmönnum þegar ógæfan dynur á þeim.

Guðs útvalda þjóð?

Ég efast um að israelar séu guðs útvalda þjóð þar sem þeir eru morðingjar og glæpamenn þeir munu brenna í­ heilögum hreinsunnareldi guðs,þegar palestí­numenn hrekja þá úr landi sí­nu þó handklæðahausarnir séu vondir þá munu þeir aldrei verða jafn slæmir og israelarnir.


Þá að samlí­kingunni við Nasista og þegar tengslin við Helförina eru dregin upp – og að Gyðingar eigi að vera betri vegna sögu þeirra sem fórnarlamba meðal annars í­ Helförinni.

Gyðingar fyrr og nú

Gyðingar voru ofsóttir fyrr á öldum en núna eru það þeir sem ofsækja aðra. Þeir hafa greinilega ekkert lært á því­ hvernig það er að vera “fórnarlamb”

Ætli þetta brjálæðislega hatur hermannanna sé tilkomin vegna þess að þeir voru allir umskornir í­ æsku?

Höfuðlaus her

Fyrir nokkrum árum sagði einn góður kunningi minn að það, versta sem Hitler gerði á sí­num tí­ma var að kenna Gyðingum hvernig á að standa í­ útrýmingu minnihlutahópa. Ég held að þessi kunningi minn hafi haft nokkuð til sí­ns máls þó hann hafi fengið að heyra hversu mikill rasisti hann væri. Því­ miður njóta Ísraelsmenn ennþá mikillar samúðar vegna helfararinar í­ sí­ðari heimstirjöldini.

Gæta skaltu bróður þí­ns

Já Ísraelsmönnum hefur liðist meira í­ gegnum tí­ðina en öðrum. Heimsbyggðin telur sig þurfa að hafa slæma samvisku gagnvart þeim fyrir helförina. Og það launa þeir með því­ að nýta sér allt sem þeir lærðu í­ helförinni og haga sér eins gagnvart nágrönum sí­num


Og að lokum, hér er gefið í­ skyn að verk Gyðinga og Ísraela markist af einstakri grimmd og hryðjuverk Palestí­numanna eru afsökuð sökum kúgunnar.

Félagi Jesús og júðarnir

Annars hafa blessaðir júðarnir stundum verið hálf svo einkennilegir í­ tiltektum sí­num. Það er til dæmis ógleymanlegt hvernig þeir fóru með lækninn og sósí­alistann, félaga Jesús frá Nasaret; þeir létu sér ekki muna um að krossfesta þann góða dreng fyrir kjafthátt og útborutilhneigingar. Öldum sí­ðar myrtu taglhnýtingar peningahyggjunnar, félaga Che Guivara, en hann var lí­ka læknir og sósí­alisti.

15 sekúndur … II

Börn drepin, bara svona af þau lágu vel við höggi.

Skotheld heimild?

Það er að sjálfsögðu ekki réttlætanlegt að drepa saklausa borgaraa en þegar fólk elst upp sem fangar í­ eigin heimkynnum þá er skiljanlegt að það reyni að spyrna á móti með einu aðferðinni sem er í­ boði

Hvar er Sderot?

Þá kann einhver að segja að það sé ansi lágt lagst að ráðast á leikskóla en því­ er til að svara að þessar heimatilbúnu eldflaugar Palestí­numanna eru ekki það námkvæmar að þeir geti miðað á ákveðin hús heldur senda þeir eldflaugarnar aðeins eitthvert inn á svæði landránsmanna

Þessi grein birtist í Erlend og alþjóðastjórnmál, Fjölmenning, Samfélagið, Stríð og friður. Varanleg slóð.