Með 51 kosningastjóra á launum hjá Alþingi

Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um tillögur forsætisnefndar Alþingis sem miða að því­ að allir landsbyggðarþingmenn eigi rétt á aðstoðarmanni í­ þriðjungsstarfi. Segir meðal annars í­ greininni: „Það þarf ekki frjótt í­myndunarafl til að geta sér til um kröfur þingmanna eftir nokkur misseri: Hvorki gengur að deila starfsmanni né að hafa hann einungis í­ 33% starfi – eina vitið í­ stöðunni verður að hver þingmaður fái sinn persónulega aðstoðarmann. Og þá verða aðstoðarmennirnir orðnir 51.

Í nýju frumvarpi til breytinga á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað er lagt til að alþingismönnum verði heimilt að ráða sér aðstoðarmann eftir nánari reglum sem forsætisnefnd Alþingis setur. Er hér um að ræða útfærslu á samkomulagi milli þingflokkanna frá því­ í­ desember sí­ðastliðnum, sem miðar að því­ að bæta starfsaðstöðu þingmanna.

Í fyrstu er gert ráð fyrir því­ að formenn stjórnmálaflokka í­ stjórnarandstöðu eigi rétt á að ráða sér aðstoðarmann í­ fullt starf, en þingmenn landsbyggðarkjördæmanna þriggja eigi rétt á að hafa aðstoðarmann í­ þriðjungsstarfi. Hefur meirihluti allsherjarnefndar Alþingis nú fjallað um málið og gert það að sinni tillögu að breytingarnar nái til allra þingmanna. Er það í­ senn sjálfsögð og eðlileg krafa að aukin aðstoð nái til allra þingmanna enda er breytingunni ætlað að vera skref í­ styrkingu löggjafarvaldsins alls gagnvart framkvæmdavaldinu. Sé ennfremur litið til þess að mun færri kjósendur eru að baki hverjum þingmanni í­ Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmi en í­ kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu má sjá hversu undarlegt þetta misræmi er.

Óraunhæfar hugmyndir um þrí­skiptingu
Heilt yfir verður hins vegar að segjast eins og er, að frumvarpið virðist að mörgu leyti vera vanhugsað. Gert er ráð fyrir því­ að þingmenn geti ráðið sér starfsmann í­ 33% starfshlutfalli, sem vekur mann til umhugsunar um hvað viðkomandi eigi að gera við hin 67% af starfsorku sinni. Sú hugmynd, að þrí­r þingmenn muni samnýta einn starfsmann og gera honum þannig kleift að vera í­ 100% starfi verður að teljast afar ósennileg enda ljóst að þingmenn kunni að hafa afar ólí­kar skoðanir á því­ hver sé heppilegur til starfsins og hvaða sérþekkingu (ef einhverja) hann þurfi að hafa, auk þess sem þingmenn kjördæma há á fjögurra ára fresti mikla samkeppni um hlutskipti sitt á lista fyrir Alþingiskosningar. Það þarf ekki frjótt í­myndunarafl til að geta sér til um kröfur þingmanna eftir nokkur misseri: Hvorki gengur að deila starfsmanni né að hafa hann einungis í­ 33% starfi – eina vitið í­ stöðunni verður að hver þingmaður fái sinn persónulega aðstoðarmann. Og þá verða aðstoðarmennirnir orðnir 51.

Í raun og veru er vandamálið við frumvarpið að þingmönnunum sjálfum er gert að ráða þessa aðstoðarmenn sí­na, án þess að aðrir geti haft nokkuð um það að segja. Ólí­klegt verður að teljast að slí­kt fyrirkomulag muni leiða til vandaðri löggjafar og styrkingu löggjafarvaldsins. Mun heppilegri leið til að ná þeim markmiðum er að binda aðstoðarmennina við sjálfa stjórnmálaflokkanna en ekki þingmennina sem slí­ka. Með slí­ku móti væri hægt að mynda heildstæðan hóp sem væri hluti af starfsliði þingflokkanna.

Sitjandi þingmenn styrkja stöðu sí­na
Það liggur í­ augum uppi hvernig nýtingin á starfsmönnum þingmanna yrði ef það fyrirkomulag sem frumvarpið gerir ráð fyrir verður að raunveruleika. Ef frumvarpið mun ná til allra óbreyttra þingmanna er ekki ólí­klegt að í­ stöður aðstoðarmannanna muni af ótrúlegri tilviljun raðast 51 kosningastjóri, allir á launum hjá hinu opinbera. Upphaflega í­ þriðjungsstarfi, en þegar fram lí­ða stundir í­ fullu starfi. Ekki yrði það nú amalegt fyrir sitjandi þingmenn að hafa slí­kan kosningastjóra í­ vinnu allan ársins hring í­ fjögur ár. Burtséð frá því­ hversu heppilegt eða óheppilegt það kann að vera fyrir löggjafarstarfsemi Alþingis er ljóst að slí­kt fyrirkomulag gæti að miklu leyti hindrað nýliðun á Alþingi – það væri að minnsta kosti við ramman reip að draga fyrir nýliða að kljást við atvinnupólití­kusa með starfsmann á launaskrá rí­kisins.

Það er sjálfsagt mál og eðlilegt að styrkja löggjafarvaldið og þingflokkana sem starfa á Alþingi. Sú leið sem stefnir í­ að verði farin er hins vegar engan vegin sú rétta til að gera það.


Agnar Freyr Helgason

er fæddur í Reykjavík þann 8. apríl 1982. Hann hefur lokið námi í hagfræði og alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og í samanburðarstjórnmálum frá London School of Economics í Bretlandi. Hann leggur nú stund á doktorsnám í stjórnmálafræði við Ohio State University í Bandaríkjunum.
Þessi grein birtist í Lýðræði, Tilkynningar. Varanleg slóð.