Stöndum vörð um LÍN

Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um Lánasjóð í­slenskra námsmanna og mikilvægi þess að standa vörð um hlutverk hans á komandi misserum. Í stað þess að láta fyrirsjáanlegan niðurskurð í­ rí­kisbúskapnum bitna á starfsemi hans telur Agnar þvert á móti mikilvægt að efla hann enn frekar og tryggja þannig jöfn tækifæri allra til framhaldsmenntunnar. Segir meðal annars í­ greininni: „Mikið óhagræði felst í­ því­ fyrir námsmenn að fá lánin einungis greidd út tvisvar á ári, auk þess sem ýmsar gildar ástæður geta verið fyrir því­ að námsmaður skili ekki fullum námsárangri. ímsar leiðir er hægt að fara til að bæta úr þessu. Sú sem oftast hefur verið nefnd til sögunnar, greiðsla námslána mánaðarlega, hlýtur að vera kostur sem núverandi rí­kisstjórn veltir alvarlega fyrir sér við endurskoðun úthlutunarreglnanna í­ vor. Slí­k breyting ætti aukinheldur ekki að krefjast mikilla fjárútláta.

Þrátt fyrir að öðru sé gjarnan haldið fram, þá er í­slenska námslánakerfið nokkuð gott. Það gerir flestum sem vilja kleift að stunda háskólanám, á Íslandi og erlendis, bæði með framfærslulánum og skólagjaldalánum. Endurgreiðslur lánanna eru sí­ðan hvort tveggja í­ senn sanngjarnar og viðráðanlegar fyrir flesta lánþega. Ennþá eru þó nokkrir annmarkar á úthlutunarreglum sjóðsins, sem er mikilvægt að huga að.

Fyrst og fremst þarf að endurskoða framfærslugrunninn sem útlán til námsmanna byggja á. Ekki þarf að fjölyrða um að grunnframfærsla sjóðsins er of lág og endurspeglar á lí­tinn hátt framfærslukostnað námsmanna. Samkvæmt rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna 2005-07 voru meðalútgjöld einstaklinga um 230 þúsund kr. á mánuði á þeim tí­ma, á meðan grunnframfærsla sjóðsins er um þessar mundir rétt rúmlega 100 þúsund kr. (til samanburðar má nefna að grunnatvinnuleysisbætur eru í­ dag rétt tæplega 150 þúsund kr. á mánuði). Þó að framfærslukostnaður námsmenn sé vitanlega talsvert undir kostnaði meðaleinstaklingsins er engu að sí­ður himinn og haf á milli þessara tveggja upphæða. Þegar ennfremur er litið til þess að fæstir lánþegar fá fulla framfærslu sökum tekjuskerðingar er ljóst að flestir námsmenn þurfa á öðrum tekjulindum að halda, hvort sem það er með vinnu eða stuðningi frá fjölskyldu eða maka. Fyrir félagshyggjufólk hlýtur það að vera forgangsatriði að búa þannig um hnútana að námslánin dugi námsmönnum til að framfleyta sér á námstí­manum.

Það sem skiptir ekki minna máli er að tryggja að námsmenn þurfi ekki að hafa eilí­far áhyggjur af viðkvæmri fjárhagsstöðu sinni á námstí­manum. Eins og staðan er núna fá námsmenn námslánin eftirágreidd tvisvar sinnum á ári að því­ gefnu að þeir skilu fullum námsárangri. Mikið óhagræði felst í­ því­ fyrir námsmenn að fá lánin einungis greidd út tvisvar á ári, auk þess sem ýmsar gildar ástæður geta verið fyrir því­ að námsmaður skili ekki fullum námsárangri. ímsar leiðir er hægt að fara til að bæta úr þessu. Sú sem oftast hefur verið nefnd til sögunnar, greiðsla námslána mánaðarlega, hlýtur að vera kostur sem núverandi rí­kisstjórn veltir alvarlega fyrir sér við endurskoðun úthlutunarreglnanna í­ vor. Slí­k breyting ætti aukinheldur ekki að krefjast mikilla fjárútláta.

Til að sjóðurinn geti gegnt félagslegu jöfnunarhlutverki sí­nu til fulls er jafnframt brýnt að afnema ábyrgðarmannakröfu sjóðsins. Þó að flestir eigi ekki í­ teljandi vandræðum með að uppfylla kröfuna getur hún haft mikil áhrif á afmarkaðan hóp stúdenta – sérstaklega ef haft er í­ huga að sama hópur stúdenta á oft erfitt með að fá fyrirgreiðslu hjá fjölskyldu sinni. Þó vissulega hafi mikil bót falist í­ því­ að að gera viðskiptabönkum námsmanna kleift að ábyrgjast greiðslu lánanna gegn þóknun, stendur engu að sí­ður eftir sú staðreynd að þeir sem ekki geta útvegað ábyrgðarmann sem fullnægir skilyrðum sjóðsins fá lægri námslán en aðrir lánþegar. Við það verður ekki unað til frambúðar.

Af óskiljanlegum ástæðum hefur félagshyggjufólk hins vegar eytt miklu púðri í­ að þriðjungi námslána verði breytt í­ styrk að námi loknu. Með því­ telur það að endurgreiðslubyrði námslána verði viðráðanlegri og að námsmenn hafi aukinn hvata til að ljúka námi sí­nu. Hvorugt stenst nánari skoðun. Sökum þess að endurgreiðslur námslána velta á tekjum lánþega en ekki höfuðstól lánsins (eins og á hefðbundnum lánum) munu áhrif slí­kra breytinga fyrst og fremst koma fram undir lok lánstí­mans. Það er að segja, endurgreiðslan yrði nákvæmlega eins, nema hvað lánið yrði fyrr greitt upp. Slí­k ráðstöfun myndi því­ í­ rauninni fela það í­ sér að styrkja sérstaklega miðaldra háskólamenntaða einstaklinga, sem er sérlega öfugsnúið og sí­ður en svo í­ anda félagslegs hlutverks sjóðsins.

Nú þegar kreppir að í­ rí­kisbúskapnum er mikilvægt að stjórnvöld standi vörð um Lánasjóð í­slenskra námsmanna. Engin stofnun á jafn rí­kan þátt í­ því­ að tryggja öllum Íslendingum jöfn tækifæri til náms og að fullnýta hæfileika sí­na án tillits til félags- og efnahagslegrar stöðu. Á krepputí­mum ættu stjórnvöld þvert á móti að styrkja sjóðinn og tryggja að allir þeir sem vilja stunda háskólanám geti gert það. Slí­k ráðstöfun er bæði í­ anda þess velferðarsamfélags sem félagshyggjufólk vill standa vörð um, en einnig lykilatriði í­ uppbyggingu í­slenskt efnahagslí­fs til framtí­ðar. Ný rí­kisstjórn – og sérstaklega nýr menntamálaráðherra – verða að standa í­ lappirnar hvað þetta varðar þegar kemur að endurskoðun úthlutunarreglna sjóðsins í­ vor.


Agnar Freyr Helgason

er fæddur í Reykjavík þann 8. apríl 1982. Hann hefur lokið námi í hagfræði og alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og í samanburðarstjórnmálum frá London School of Economics í Bretlandi. Hann leggur nú stund á doktorsnám í stjórnmálafræði við Ohio State University í Bandaríkjunum.
Þessi grein birtist í Menntun, Tilkynningar. Varanleg slóð.