Trúarbragðarleysi er mannhyggja

Í grein dagsins hvetur Haukur Hólmsteinsson fólk til að íhuga trúarbragðahugtakið. Hann minnist á andalegheit, sannleikann og trúarbragðaskráningu.

Þegar ég skráði mig úr þjóðkirkjunni var mömmu minni brugðið. „Af hverju gerðiru það?“ Spurði hún. Ég svaraði einfaldlega: „Ég trúi ekki því sem stendur í biblíunni.“
Lesa meira…

Birtist í Fjölmenning, Jafnrétti, Mannréttindi, Samfélagið, Stríð og friður |

Snilldin við rakstur á píkunum okkar

Halla Tryggvadóttir horfði á allar þáttaraðirnar af Sex and the city um daginn og hefur verið hugsi yfir kynfærarakstri síðan.

Í þætti í fyrstu þáttaröðinni, sem kom út fyrir rúmum tíu árum lýsir Samantha, sem hefur mjög frjálslegt viðhorf til kynlífs, yfir undrun sinni á því að hjásvæfa hennar biður hana um að raka af sér skapahárin. Ég varð eins undrandi og Samantha, nema undrun mín stafaði af því að ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að ekki lengra er síðan píkurakstur þótti bara ekkert eðlilegur.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Hjúkrun í Nairobi

Halla Tryggvadóttir fjallar um upplifun sína af því að fara til Nairobi í hjálparstarf.

En þegar í ferðalaginu felst hjálparstarf þar sem hlutverk manns er að sinna og hjúkra fátækustu íbúum borgarinnar Nairobi, þar sem finna má nokkur stærstu fátækrahverfi heims, er hægara sagt en gert að undirbúa sig. Í rauninni er það ekki hægt.
Lesa meira…

Birtist í Fátækt og ójöfnuður, Mannréttindi, Ísland og umheimurinn |

101 mætir 701

Austfirðingurinn Gunnar Gunnarsson fjallar um hvernig aðlögunin að lífinu í 101, eftir fimm ár í námi, hafi jafnvel gengið of langt.

Fyrsta verkið mitt var að finna hlýrri föt í íbúðinni minni á Egilsstöðum. Svarti frakkinn fauk fyrir hlýja úlpu sem keypt var á lagersölu. Strigaskórnir fyrir fótabúnað sem líklegri var til að hjálpa mér við að vaða snjóinn eða haldast uppréttur í hálku. Klæðnaður til að bíllausa kuldaskræfan kæmist áhyggjulaus ferða sinna innanbæjar. Síðan fellur maður inn í rútínuna. Það er ekkert 10-11 á horninu opið allan sólarhringinn.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |

Suðandi stórhríð

Í grein dagsins fjallar Björg Magnúsdóttir um þá suðandi stórhríð sem einkennir alnetið.

Ruglið, pælingarnar, myndböndin, draslið, upplýsingarnar – „suðið“ – er endalaust og óstöðvandi. Ef okkur finnst upplýsingar á netinu of miklar og óskiljanlegar í dag getum við verið viss um að þær munu ekki minnka til framtíðar litið.
Lesa meira…

Birtist í Tilkynningar |