Orð eru til alls fyrst. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál.
Á Vefritið skrifar fólk sem vill samfélag sem er í senn réttlátt og skilvirkt; að það sé byggt á menntun, frjálsu atvinnulífi og jöfnum tækifærum, virðingu fyrir manneskjunni og umhverfi hennar.
Við vonumst til þess að Vefritið verði vettvangur ferskrar umræðu sem situr ekki föst í skotgröfum en er spyrjandi og leitandi í umfjöllun um málefni líðandi stundar.
Vefritið tengist hvorki stjórnmálaflokkum né félagasamtökum. Efnistök og skrif eru á ábyrgð höfunda og kunna þau að vera jafn mörg og misjöfn og þau sem að vefritinu koma.
Ritstjórn Vefritsins skipa:
Eva Bjarnadóttir
Halla Tryggvadóttir
Haukur Hólmsteinsson
Helga Tryggvadóttir
Hrönn Guðmundsdóttir
Þórir Hrafn Gunnarsson
Hægt er að hafa samband við ritstjórnina með því að senda tölvupóst á vefritid hjá vefritid.is.
Vefritið hóf göngu sína föstudaginn 13. október 2006. Stofnendur Vefritsins voru Agnar, Anna Pála, Eva, Grétar, Helga, Hrafn, Magnús Már, Pétur, Valgerður og Þórir.